Frá viðgerðum í dag.VegagerðinBrúin yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun hefur verið opnuð á ný. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni kom fjöldi fólks að viðgerð brúarinnar og verkið gekk vel.Brúnni var lokað í gærkvöld eftir að steypubíll ók af henni. Ökumanni bílsins var bjargað upp af hlið hans af þyrlusveit Landhelgisgæslunnar.Bíllinn var dreginn úr ánni síðdegis.