Bandaríkin ráðast á Íran á ný

Bandaríkjaher gerði í kvöld loftskeytaárásir á nokkur skotmörk í Íran, þrátt fyrir vopnahlé. Þetta kemur fram í tilkynningu frá miðstjórn Bandaríkjahers (CENTCOM) á samfélagsmiðlinum X í kvöld. Í tilkynningunni segir að árásirnar séu gerðar í kjölfar árása Írana á þrjú flutningaskip við Hormússund síðastliðinn sólarhring.Þá hafa undanþágur frá viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Íran verið dregnar til baka. Undanþágurnar, sem snéru að sölu á íranskri olíu, voru hluti af vopnahléssamkomulagi ríkjanna.CNN hefur eftir bandarískum embættismanni að árásir Bandaríkjanna séu „ekki í réttu hlutfalli“, þær séu gerðar í refsingarskyni og að „þessu muni ekki ljúka í bráð“.Bandaríkin gerðu í kvöld loftárásir á Íran. Árásirnar eru gerðar í hefndarskyni fyrir árásir á flutningaskip við Hormús sund síð
Bandaríkin ráðast á Íran á ný

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd