Brúin yfir Þjórsá verður opnuð í kvöld eða strax í fyrramálið

Vel gekk að ná steypubíl úr Þjórsá við Sultartangavirkjun í dag en bíllinn valt af trébrú yfir ána í gærkvöld.Steypubíllinn, sem er frá Steypustöð Selfoss, fór út af brú yfir Þjórsá í gærkvöldi við Sultartangavirkjun en ekki er vitað hvað gerðist sem varð til þess að bíllinn fór í ána. Ökumaður bílsins náði að komast upp á hlið bílsins og var svo hífður þaðan upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem flutti hann á sjúkrahús en maðurinn ofkældist. Brúin hefur verið lokuð síðan atvikið varð því handrið brotnaði af brúnni að hluta til við óhappið.Nú standa yfir viðgerðir á brúnni. Ekki er víst hvort viðgerðir klárist í kvöld en stefnt er á opnun brúarinnar í síðasta lagi á morgun. Það gekk vel að ná steypubílnum úr ánni en stór beltagrafa dró hann á þurrt land.„Já, þetta gekk ótrúlega vel og það e
Brúin yfir Þjórsá verður opnuð í kvöld eða strax í fyrramálið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd