Rúmlega áttatíu prósent Íslendinga segjast ætla eða hafa áhuga á því að fylgjast með almyrkvanum á sólu þann 12. ágúst. Flestir, eða rúm 43% svarenda spurninga Ferðamálastofu í spurningavagni Gallup, segjast ætla að fylgjast með almyrkvanum frá heimili sínu eða næsta nágrenni en rúm 6% hyggja á ferðalag til að sjá myrkvann. Tæplega 33% segjast hafa áhuga á því að fylgjast með almyrkvanum en hafa þó ekki ákveðið hvort eða hvaðan fylgst verði með. Um 15% ætla ekki að fylgjast með sólmyrkvanum.Áhuginn er mestur meðal íbúa Reykjavíkur og nágrannasveitarfélaga, þar sem 90% fólks sýnir almyrkvanum áhuga, samanborið við 73% íbúa annarra sveitarfélaga. Reykvíkingar virðast þó heldur óákveðnari en íbúar nágrannasveitarfélaganna. Í Reykjavík segjast aðeins 38% íbúa ákveðin í að fylgjast með almyrkva