Maður sem brenndist illa á tæplega helmingi líkamans í aðgerðum lögreglu segir mikilvægt að lögreglumenn fái betri þjálfun í notkun rafbyssa. Maðurinn, sem hellti yfir sig bensíni, segir að kviknað hafi í sér út frá rafbyssuskoti. „MÍN VIÐBRÖGÐ VORU BARA: HALDIÐ YKKUR FJARRI“ Maður sem brenndist illa á rúmlega helmingi líkamans í aðgerðum lögreglu segir mikilvægt að lögregla fái meiri þjálfun í notkun rafbyssa. Ótækt sé að beita slíku vopni þegar einstaklingur er ataður í eldsneyti. Hann hafnar staðhæfingum lögreglu um að hann hafi kveikt í sjálfum sér.„Ég var þarna í kirkjugarðinum, á helgri jörð. Ég var að fara með bæn fyrir látna einstaklinga sem voru mér kærir og ég sé síðan lögreglumenn nálgast mig að aftan og framan og fer í panikk,“ segir Mikkael Ingiberg Gunnlaugsson.Lögreglan h