Bæði Samtök verslunar og þjónustu og Samtök atvinnulífsins gagnrýna svokallað umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins um dagvöruverð á Íslandi sem gefið var út 10. júní. Í umræðuskjalinu er að finna samanburð á matvöruverði á Íslandi og í Evrópu og bent á þau almæltu tíðindi að verðlag hér á landi hér sé hátt.