Marine Le Pen hefur staðfest að hún ætli að bjóða sig fram í forsetakosningum á næsta ári. Fyrr í dag mildaði áfrýjunardómstóll refsingu í fjársvikamáli gegn henni frá því í fyrra. Le Pen ætlar að áfrýja til hæstaréttar.Le Pen var sakfelld í fyrra fyrir að misnota styrki frá Evrópuþinginu til að fjármagna starf flokksins í Frakklandi. Áfrýjunardómstóll staðfesti dóminn í dag en stytti refsinguna.Samkvæmt honum verður hún sektuð um hundrað þúsund evrur og dæmd til þriggja ára fangelsisvistar - sem hún afplánar í stofufangelsi með ökklaband í eitt ár.Dómstóllinn stytti einnig framboðsbann úr fimm árum í 15 mánuði sem gerir henni kleift að bjóða sig fram til forseta 2027. Le Pen hefur áður lýst því yfir að hún bjóði sig ekki fram ef hún verður með ökklaband.Hún ætlar að áfrýja dómnum frá því