Einn ákærðra í Dettifossmálinu fékk ríkisborgararétt eftir reiðiöldu

Héraðssaksóknari gaf í gær út ákæru á hendur fjórum mönnum í svokölluðu Dettifossmáli. Málið snýst um smygl á rúmum 14 lítrum af amfetamínbasa til landsins með Dettifossi, gámaskipi Eimskips.Sex voru í fyrstu handteknir eftir að lögregla og tollgæsla fóru um borð í Dettifoss í Sundahöfn 6. apríl. Þremur var fljótlega sleppt en hinir þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Sá fjórði var svo hnepptur í varðhald 24. apríl.Amfetamínbasinn var 47-48% að styrkleika og miðað við það má áætla að úr vökvanum hefði mátt framleiða hátt í fimmtíu kíló af hreinu amfetamíni í duftformi. Ljóst er að götuvirði þess hefði numið hundruðum milljóna króna. TVEIR SKIPULEGGJENDUR Tveir hinna ákærðu voru starfsmenn Eimskips þegar smyglið kom upp. Þeir hafa báðir verið samstarfsfúsir við rannsóknina, að því er fram
Einn ákærðra í Dettifossmálinu fékk ríkisborgararétt eftir reiðiöldu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd