Vinnslustöðin taldist ekki vera útgerðaraðili þrátt fyrir að vera eini eigandi Hugins

Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar hefur ekki ákveðið hvort hún áfrýi dómi Héraðsdóms Suðurlands, sem sýknaði Vinnslustöðina, Hugin og tryggingafélagið VÍS af skaðabótakröfum vegna tjóns á neysluvatnslögn til Eyja. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri segir að málið verði tekið fyrir á fundi bæjarráðs eftir tvær vikur og næstu skref ákveðin þá.Vestmannaeyjabær og Ljósleiðarinn stefndu Vinnslustöðinni, Hugin og VÍS vegna tjóns sem varð á neysluvatnslögn til Vestmannaeyja og ljósleiðara þar sem vatnslögnin og ljósleiðarinn lágu á hafsbotni í innsiglingunni til Vestmannaeyja. Tjónið varð þegar skipið Huginn VE missti akkeri sem dróst eftir hafsbotninum og skemmdi vatnslögnina og ljósleiðarann.Í dóminum, sem var birtur í dag, segir að Vinnslustöðin hafi verið sýknuð af fjárhagskröfu Vestmannaeyjabæjar o
Vinnslustöðin taldist ekki vera útgerðaraðili þrátt fyrir að vera eini eigandi Hugins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd