Viðgerðir á mótor Herjólfs IV Vestmannaeyjaferju eru á áætlun og gert er ráð fyrir að mótorinn verði sendur til Íslands með skipi frá Hollandi þann 13. júlí. Þetta segir í tilkynningu Vegagerðarinnar. Mótorinn verði settur í ferjuna þegar hann berst svo til landsins og ferjan Baldur í kjölfarið snúa aftur til siglinga á Breiðafirði þegar uppsetningu mótorsins er lokið.