„Fyrst og fremst stjórnskipuleg spurning“

Hreyfingin Áfram Ísland, vettvangur fólks sem telur hagsmunum Íslands best borgið utan ESB, var formlega stofnuð í gær á fjölmennum fundi í miðborg Reykjavíkur. Einn ræðumanna fundarins var Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í tæknirétti. Hún var gestur Fram undan í morgun.Hún gekk til liðs við hreyfinguna því henni hefur þótt umræðan ómálefnaleg og öfgakennd í báðar áttir.„Ég fagnaði því að það væri vilji til þess að koma fram undir formerkjum málefnalegrar umræðu.“Hún er á móti því að Ísland hefji aðildarviðræður við ESB á ný út frá stjórnskipulegum ástæðum.„Ég er lögfræðingur að mennt og þetta snýst um breytingu á íslensku stjórnskipulagi. Fyrir mitt leyti snýr spurningin um það hvar endanlegt vald á að liggja þegar kemur að íslenskum málefnum og íslenskum hagsmunum.“
„Fyrst og fremst stjórnskipuleg spurning“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd