Úkraínsk kona grunuð um sprengjutilræði í Mónakó fannst myrt

Úkraínsk kona, sem er grunuð um sprengjuárás gegn úkraínskum milljónamæringi í Mónakó í júní, er látin. Tveir menn hafa verið handteknir, grunaðir um að ráða henni bana.Í lok júní gaf Interpol út alþjóðlega handtökuskipun á hendur Anastasiiu Berezovsku, þrjátíu og níu ára úkraínskri konu. Hún var talin hafa flúið Mónakó eftir að hafa komið sprengju fyrir í anddyri fjölbýlishúss með þeim afleiðingum að úkraínskur auðkýfingur og fjölskylda hans særðust.Samkvæmt aðstoðarsaksóknara í Mónakó fylgdist Berezovska með íbúðarhúsinu í aðdraganda árásarinnar og dulbjó sig sem karlmann þegar hún kom sprengjunni fyrir í síðustu viku. Þá á hún að hafa snúið aftur til Úkraínu tveimur dögum síðar, þar sem hún hafði samband við fjölskyldu sína og tvo menn, fyrrverandi lögreglumann og starfandi yfirmann hjá
Úkraínsk kona grunuð um sprengjutilræði í Mónakó fannst myrt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd