Dýrfinna, samtök sjálfboðaliða sem aðstoða týnd dýr við að komast aftur heim, auglýstu á dögunum eftir eiganda hunds sem fannst dauður við Langjökul. Það sem er óvanalegt við auglýsinguna er að þar kemur fram að alls óvíst er hversu lengi hundurinn hefur verið týndur. Eygló Anna Guðlaugsdóttir, sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu, segir að ekki liggi fyrir hvort hundurinn hafi orðið úti við jökulinn eða borist niður með ísnum. „Það eru tillögur um það hvort hann hafi dottið ofan í sprungu en bara mjög erfitt að segja til um það, því að við vitum ekkert hversu lengi eða langt síðan þessi fór,“ segir Eygló. GÆTI ÞEKKST Á ÓLINNI Hundurinn fannst á mjög fáförnum stað. Erfitt er að segja til um tegund hundsins, en hann var með ól. Ef einhver saknar hunds getur hann haft samband við Dýrfinnu og lýst ó