Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, leggur fram frumvarp í haust um hert viðurlög við vændiskaupum. Girt verður fyrir að hægt sé að ljúka máli vegna vændiskaupa með sekt, heldur verið ákært í þeim málum.Frumvarpið var lagt fram til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda í dag.„Ég hef verið skýr frá því ég tók við embætti að það eigi að taka á þessum málum,“ segir Þorbjörg í skriflegu svari til fréttastofu.Lögregla hafði afskipti af sextán konum í lögregluaðgerð í Reykjavík í fyrri hluta júní. Aðgerðin stóð yfir í fimm daga. Talið er að kínversk glæpasamtök hafi gert sumar þeirra út í vændi. Fimm vændiskaupendur voru handteknir í sömu aðgerð.Allt var þetta hluti af samræmdum aðgerðum í 59 löndum víðs vegar um heim.Þorbjörg segir óásættanlegt að upp spretti rauð hverfi í Reykjav