Franskur skólaliði sýknaður af ákæru um kynferðisofbeldi

Dómstóll í París hefur sýknað franskan skólaliða af ákæru um kynferðislegt ofbeldi gegn leikskólanemendum. Hann var hins vegar dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gegn samstarfsfólki sínu.Lögreglan í París rannsakar yfir 100 ásakanir um illa meðferð, líkamlegt ofbeldi og nauðganir á börnum allt niður í þriggja ára aldur í frönskum grunn- og leikskólum. Grunur leikur á að skólaliðar hafi beitt börnin ofbeldi í hádegishléum, hvíldartímum og eftir skóla.Réttarhöldin í dag voru þau fyrstu síðan fjöldi ásakana um misnotkun skók Parísarborg. Þar hafa foreldrar sakað skólaliða um að hafa misþyrmt börnum sínum eða beitt þau líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi.Maðurinn sem var sýknaður fyrir dómstólum í dag hafði verið ákærður fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn ní
Franskur skólaliði sýknaður af ákæru um kynferðisofbeldi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd