Fjallalamb hefur um árabil verið einn af stærstu atvinnurekendunum á Kópaskeri og í Öxarfirði. Frá 2015 hefur byggð í Öxarfirði verið skilgreind brothætt af Byggðastofnun og stofnunin hefur aðstoðað við rekstur Fjallalambs, bæði með hlutafé og lánveitingum. Nýverið ályktaði stjórn Fjallalambs og óskaði eftir að Byggðastofnun afskrifaði lán sem hún veitti fyrirtækinu. Við þeirri bón gat Byggðastofnun ekki orðið, þar sem stofnunina skortir lagaheimild til þess.„Byggðastofnun er tilbúin að halda áfram stuðningi við félagið Fjallalamb enda hefur orðið viðsnúningur í rekstrinum hjá þeim. Íbúar á svæðinu og aðstandendur félagsins vilja hafa fullan vilja til að halda áfram, það er mjög mikilvægt að það séu allir á sömu blaðsíðu,“ segir Hrund Pétursdóttir, forstöðumaður hjá Byggðastofnun. REKSTU