Áhyggjur af þrálátri verðbólga og háu vaxtastigi eru farin að hafa merkjanleg áhrif á fjárfestingar í mörgum atvinnugreinum, að sögn fjármálastjóra Íslandsbanka, en fyrirtækin eru að fresta öllum fjárfestingarákvörðunum sem hægt sé að fresta. Þótt íslensku bankarnir, sem eru allir með jákvæðan verðtryggingarjöfnuð, njóti til skamms tíma ávinnings af mikilli verðbólgu þá mun sú staða að lokum snúast í andhverfu sína og valda þeim útlánatapi.