Orðheppinn maður orðsins

„Hann er maður textans. Hann er maður orðsins,“ segir Jónatan Garðarsson fjölmiðlamaður, um Magnús Þór Jónsson, Megas.Tónlistarmaðurinn, rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Megas er látinn, 81 árs að aldri.Jónatan er sérfróður um íslenska tónlistarsögu og fór yfir arfleifð Megasar í stuttu máli í hádegisfréttum.„Það sem Megas kemur með er nýr tónn í textagerð. Hann er algjörlega berskjaldaður, hann talar um fólk og málefni á mjög opinskáan hátt,“ segir Jónatan.Megas dró upp nýja mynd af gömlu þjóðhetjunum. „Lýsir þeim eins og venjulegum manneskjum, fer jafnvel í það að segja frá göllum þeirra frekar en kostum. Svo er hann maður orðsins, hann er orðheppinn, hann var mjög vel að sér í íslensku en hann notaði líka slanguryrði á mjög snjallan og skemmtilegan hátt,“ lýsir Jónatan.Megas skilur
Orðheppinn maður orðsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd