Hrun hafstraumkerfis Atlantshafsins gæti þegar verið óumflýjanlegt, samkvæmt nýrri rannsókn breskra vísindamanna. Kerfið á stóran þátt í að loftslag Norðurlanda er tiltölulega milt og ef það stöðvast gæti orðið nær óbyggilegt á Íslandi vegna kulda.Í nýrri grein í vísindatímaritinu New Scientist kemur fram að samkvæmt hermilíkanarannsókn breskra vísindamanna séu líkur á að hrun hafstraumkerfis Atlantshafsins, AMOC, gæti verið óhjákvæmilegt.Vísindamennirnir gerðu hermilíkön með bráðnun Grænlandsjökuls miðað við magn gróðurhúsalofttegunda sem sýndu að ef hámarki gróðurhúsalofttegunda er þegar náð og bráðnun jökulsins hækkar yfirborð sjávar um einungis 54 millimetra fyrir árið 2100 séu tíu prósent líkur á að hrun kerfisins sé þegar óumflýjanlegt.„Þessi grein notar ákveðna tegund af hermilíkönu