Þeir fimmtíu vændiskaupendur sem lögregla náði á mynd við eftirlit í júní eru bara dropi í hafið, að sögn teymisstjóra Bjarkarhlíðar. Hún veit um einn þolanda vændismansals sem hefur þurft að þjónusta áttatíu kaupendur yfir 72 tíma skeið. Aðgerðir lögreglu feli í sér mikinn fælingarmátt gagnvart þeim sem hyggjast kaupa í fyrsta skipti.