Enn óvissa um pólitíska framtíð Marine Le Pen

Áfrýjunardómstóll í Frakklandi staðfesti í dag dóm yfir Marine Le Pen, stofnanda Þjóðfylkingarinnar. Óvíst er hvort hún býður sig fram til forseta á næsta ári.Pólitísk örlög Marine Le Pen, leiðtoga frönsku Þjóðfylkingarinnar, eru enn óljós. Áfrýjunardómstóll í París staðfesti í hádeginu sakfellingu lægri dómstóls yfir henni.Til upprifjunar var Le Pen á síðasta ári, ásamt fleiri leiðtogum Þjóðfylkingarinnar, sakfelld fyrir að misnota styrki frá Evrópuþinginu til að fjármagna starf flokksins í Frakklandi.Með dómnum var Le Pen bannað að bjóða sig fram til opinbers embættis í fimm ár. Auk þessa var hún dæmd til fjögurra ára fangelsisvistar, skilorðsbundinnar til tveggja ára, og gert að greiða háa sekt. DÆMD Í EINS ÁRS STOFUFANGELSI Dómari áfrýjunardómstólsins staðfesti dóminn, sektaði hana
Enn óvissa um pólitíska framtíð Marine Le Pen

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd