Fulltrúar bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar funda í vikunni með lögmönnum sínum eftir að Héraðsdómur Suðurlands sýknaði Vinnslustöðina, Hugin og Vís tryggingar af kröfum bæjarins. Bærinn krafðist tæpra tveggja milljarða vegna tjóns sem varð á vatnsleiðslu.