Flugvél af gerðinni Douglas DC 6B er núna á leiðinni til Reykjavíkur frá Salzburg í Austurríki. Áætlað er að hún lendi á Reykjavíkurflugvelli um hálfþrjúleytið í dag og verði yfir nótt. Flugáhugamenn fá með komu hennar fágætt tækifæri til að sjá með eigin augum flugvél sem markaði djúp spor í flugsögu Íslendinga.