Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur ráðið Katrínu Sigurjónsdóttur í starf sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Alls bárust 15 umsóknir um starfið en sex drógu umsóknir sínar til baka á meðan á ráðningarferlinu stóð.Gerður Sigtryggsdóttir var áður sveitarstjóri, en hún tók við þegar Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur var sagt upp starfi sveitarstjóra síðasta haust.Þrír listar buðu fram í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Á-listi Ábyrgðar hlaut 49,12% kosningu og fjóra sveitarstjórnarfulltrúa. L-listi framfara fékk 29,22% atkvæða og tvo fulltrúa og N-listinn hlaut 21,66% kosningu og einn fulltrúa. Enginn listanna bauð fram í sveitarstjórnarkosningunum 2022.Katrín hefur störf í ágúst. Hún er Borgfirðingur, fædd árið 1968, og hefur áður gegnt stöðu sveitarstjóra hjá Dalvíkurbyggð og Norðurþingi auk þes