Óvissa ríkir um áframhaldandi viðveru bandarísks herafla í Eistlandi. Bandarískum hermönnum í landinu hefur fækkað verulega á undanförnum árum.Eistneskur embættismaður segir viðveru bandarísks herliðs á austurvæng NATO sérstaklega mikilvæga.Fram kemur í frétt eistneska ríkisfjölmiðilsins EER að bandarískt herlið hafi verið með viðveru í Eistlandi frá því að ríkin gerðu tvíhliða samkomulag árið 2022. Herinn er ekki með fasta viðveru en skiptir reglulega út herafla í landinu. EINUNGIS 100 HERMENN EFTIR Hanno Pevkur, varnarmálaráðherra Eistlands, segir nýja sveit bandarísks herliðs væntanlega til landsins í sumar.Sveitinni sé ætlað að dvelja þar út árið en óvíst sé hvað taki við eftir það. Hann segir fjölda hermanna í landinu hafa verið á bilinu 500 til 700 en nú séu færri en 100 eftir.Pev