Sólborg Guðbrandsdóttir, rithöfundur, bendir á svimandi há laun talsmanna Áfram Íslands. Spyr hún hvaða hagsmuni þeir séu raunverulega að verja.„Ólafur Ragnar var með rúmar 4,7 milljónir króna í mánaðartekjur árið 2024 samkvæmt Tekjublaðinu og á meðan Halldór Benjamín starfaði sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins voru mánaðartekjur hans tæpar 4,3 milljónir króna, sem gerði hann að einum launahæsta starfsmanni hagsmunasamtaka,“ segir Sólborg í færslu á samfélagsmiðlum.