Megas er látinn

Tónlistarmaðurinn Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, er látinn 81 árs að aldri. Frá þessu greinir RÚV.Megas fæddist í Reykjavík þann 7. apríl árið 1945. Foreldrar hans voru Þórunn Elfa Magnúsdóttir og Jón Þórðarson. Eftir að Megas lauk námi við Menntaskólann í Reykjavík hélt hann til Noregs þar sem hann nam þjóðháttafræði við Oslóarháskóla. Hann byrjaði snemma að fást við lagasmíðar og textagerð en teikning átti hug hans einnig. Hann átti síðar eftir að útskrifast frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands.
Megas er látinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd