Magnús Þór Jónsson, Megas, tónlistarmaður, rithöfundur og myndlistarmaður er látinn, 81 árs.Magnús Þór, sem tók upp nafnið Megas á námsárum sínum, fæddist í Reykjavík 7. apríl 1945. Foreldrar hans voru Þórunn Elfa Magnúsdóttir og Jón Þórðarson. Hann gekk í Austurbæjarskóla og Menntaskólann í Reykjavík og lauk stúdentsprófi þaðan árið 1965. Megas hélt til Noregs til að stunda nám í þjóðháttafræði við Óslóarháskóla. Hann byrjaði snemma að fást við lagasmíðar og textagerð en teikning átti hug hans einnig. Síðar átti hann eftir að útskrifast frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands.Megas byrjaði ungur að leika á píanó. Hann samdi mikið og er talið að helstu áhrifavaldar á æskuárum hans hafi verið Halldór Laxness og Elvis Presley og seinna Bob Dylan sem hann gerði útvarpsþætti um. Hann var afar a