Aðeins nokkrum klukkutímum áður en Donald Trump Bandaríkjaforseti mætir á leiðtogafund NATO hér í Ankara, var tilkynnt um milljarða dollara samninga um framleiðslu hergagna sem auka eiga varnargetu bandalagsins.Nítján aðildarríki NATO, þar á meðal Noregur, Belgía, Lettland og Svíþjóð taka þátt í þessum samningum, sem snúast meðal annars um að setja á laggirnar flota af Airbus þotum sem dælt geta eldsneyti í aðrar flugvélar á lofti og kaup á eftirlitsdrónum sem framleiddir verða af bandaríska fyrirtækinu Northrop-Grumman.Sænska fyrirtækið Saab, í samstarfi við Bombardier í Kanada, mun framleiða nýja kynslóð flugvéla, svokallaðar Golden Eye, sem taka eiga við af AWACS vélum NATO, til að fylgjast með og samþætta hernaðaraðgerðir í lofti, á láði og á legi. Minnst tíu slíkar vélar verða framlei