Mesta umferðin á föstudögum en minnst á laugardögum

Umferð hefur aukist um 1% frá áramótum, samanborið við sama tímabil í fyrra.RÚVUmferð á hringveginum jókst í júní eftir þriggja mánaða samdrátt. Umferð var 3,6% meiri en í júní í fyrra.Aukninguna má að stórum hluta rekja til verulegrar fjölgunar ökutækja um mælisnið við Úlfrarsfell, samkvæmt yfirliti Vegagerðarinnar.Frá áramótum hefur umferð aukist á þriðjudögum (3,0%), miðvikudögum (3,2%), laugardögum (0,1%) og sunnudögum (3,6%) en dregist saman á mánudögum (-2,1%), fimmtudögum (-0,1%) og föstudögum (-1,0%). Mest er ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.Spálíkan Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir að umferð muni aukast um 3,5%, það sem eftir lifir árs.
Mesta umferðin á föstudögum en minnst á laugardögum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd