Manntjón vegna óveðurs og úrhellis

Stífla brast í Nanning í Guangxi -héraði í Kína í óveðrinu og mikið flóð flæddi um svæðið..AP/Xinhua / Cao Yiming15 eru látnir og níu er saknað eftir mikil flóð og skriður vegna óveðurs og úrhellis í Kína. Ríkisfjölmiðlar í Kína segja að nokkur hundruð séu slasaðir og tugir þúsunda hafi þurft að yfirgefa heimili sín vegna óveðursins.Hubei og Guangxi héruð urðu verst úti í óveðrinu. Stifla brast í Nanning, höfuðborg Guangxi héraðs og mikil skriða féll í Gansu héraði.33 grófust undir skriðunni og búið er að bjarga um helmingi þeirra en björgunaraðgerðir standa enn yfir til að bjarga þeim sem enn eru fastir.
Manntjón vegna óveðurs og úrhellis

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd