Brúin yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun lokuð vegna viðgerðar

Steypubíll fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangastöð á áttunda tímanum í kvöld. Ökumanninum var bjargað upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar.Slysavarnarfélagið LandsbjörgBrúin yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun á vegi nr. 32 – Þjórsárdalsvegi, er lokuð þar til viðgerð lýkur á brúnni.Steypubíll fór út af brúnni á áttunda tímanum í kvöld og hafnaði í ánni. Handriðið fór af brúnni að hluta og því er brúin lokuð þar til viðgerð er yfirstaðin.Grétar Einarsson, verkstjóri í þjónustustöð Vegagerðarinnar á Selfossi, telur að lokunin verði út morgundaginn. Hann segir að vegfarendur sem séu á leið í Landmannalaugar, á Sprengisand og í Veiðivötn þurfi að keyra Landveg vegna lokunarinnar.
Brúin yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun lokuð vegna viðgerðar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd