Amira Smajic, einnig þekkt sem Svarti svanurinn eftir heimildaþáttum með sama nafni, var dæmd í 26 mánaða fangelsi fyrir rétti í Óðinsvéum í Danmörku í gær.Smajic varð þekkt í Danmörku eftir að þættirnir voru sýndir á TV2 árið 2024 og einnig á RÚV. Smajic, sem er viðskiptalögfræðingur, aðstoðaði rannsóknarblaðamanninn Mads Brügger við að afhjúpa peningaþvætti glæpamanna á Norðurlöndunum en lék tveimur skjöldum við gerð þáttanna. FALSAÐI LAUNASEÐLA Dóminn í gær hlaut Smajic fyrir að fjársvik, skattalagabrot og fyrir að hafa ekki greitt virðisaukaskatt af tekjum sínum. Berlindske Tidende segir að hún hafi útbúið falska launaseðla sem hún reyndi að fá greidda frá fjölmörgum fyrirtækjum sem höfðu farið í gjaldþrot.Henni tókst að láta það líta út fyrir að fjöldi fólks hefði starfað í gjaldþr