Tankskipið var um átta sjómílur austur af ströndum Óman, nærri Hormússundi, þegar það varð fyrir árás.RÚV / Sigurður Kristján ÞórissonEldur braust út um borð í olíutankskipi eftir að skotið var á skipið nærri Hormússundi í nótt. Tankskipið var um átta sjómílur austur af ströndum Ómans þegar það varð fyrir skoti af ótilgreindri gerð.Breska siglingaöryggisstofnunin, UKMTO, segir að ekki hafa borist tilkynningar um manntjón eða umhverfismengun af völdum árásarinnar.Bandaríska fréttaveitan Axios segir að Íranar hafi skotið að minnsta kosti tveimur flugskeytum að flutningaskipum í gær. AFP fréttaveitan hefur ekki enn fengið það staðfest.