26 létust og yfir eitt hundrað fangar eru slasaðir eftir óeirðir í fangelsi í vestur Srí Lanka á síðustu tveimur dögum. Breska ríkisútvarpið greinir frá því að sjö hinna látnu hafi verið fangaverðir í Negombo-fangelsinu.Svo virðist sem átök hafi brotist út milli tveggja hópa fanga á sunnudag. Fangar réðust að fangavörðum og tóku byssur þeirra. Tveir létust á sunnudag og tugir særðust.Átök héldu svo áfram í gær þegar fangarnir reyndu að brjótast út um öryggislið fangelsins. Öryggissveitir voru kallaðar til og fjölmargir skothvellir heyrðust frá fangelsinu.Nokkrir aðstandendur fanganna komu saman fyrir utan fangelsið og reyndu að afla sér upplýsinga um hvaða fangar hefðu látist og hverjir hefðu slasast.Ráðherra dómsmála og fangelsa, Harshana Nanayakkara, hefur óskað eftir því að málið verði