Steypubíll fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangastöð á áttunda tímanum í kvöld. Ökumaðurinn var einn í bílnum.Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og var fyrst viðbragðsaðila á staðinn. Ökumanni steypubílsins var bjargað upp í þyrluna af hlið bílsins og var fluttur til Reykjavíkur til aðhlynningar. Ökumaðurinn varð fyrir ofkælingu en hlaut ekki aðra áverka, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi.