Er hægt að byrja að rífa í lóðin eftir fertugt með mörg lítil börn á heimilinu og ná miklum árangri á skömmum tíma? Hildigunnur Borga Gunnarsdóttir svarar þeirri spurningu eindregið játandi og talar af reynslu. Eftir að hafa smitast af lyftingabakteríunni fyrir þremur árum er hún farin að taka að sér þjálfun fyrir hópa og einstaklinga.