Frá því að Vaðlaheiðargöng voru tekin í notkun árið 2018 hefur einungis verið sjálfvirk rukkun fyrir að keyra í gegnum göngin. Myndavél tekur mynd af númeraplötu og annaðhvort er reikningur sendur í heimabanka fólks eða fólk er með bílinn í áskrift. Veggjald punktur is hefur annast gjaldtökuna. Þetta fyrirkomulag hefur ekki verið gallalaust en meðal annars hefur gengið erfiðlega að rukka erlenda ferðamenn sem eru á eigin bílum hér á landi og sömuleiðis verið töluverð vinna fyrir bílaleigur að rukka ferðamenn eftir á.Valgeir Bergmann, fyrrverandi framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga, segir að töluverð þörf hafi verið á nýju fyrirkomulagi. Undanfarið hafi gengið enn verr að rukka erlenda gesti ganganna. Að einhverju leyti skýrist það af því að sífellt var verið að hafna greiðslukortum þeirra þe