„Óskynsamlegt að taka einhverja u-beygju núna“

Hátt í þúsund manns mættu á stofnfund hreyfingarinnar Áfram Ísland, sem berst gegn því að aðildarviðræður við Evrópusambandið verði hafnar á ný. Fyrrverandi forseti Íslands segir óskynsamlegt að taka u-beygju frá því sem Ísland hefur áorkað á nær öllum sviðum frá því sjálfstæði náðist. HAGSMUNUM ÍSLANDS BEST BORGIÐ UTAN ESB „Hér er stofnfundur samtakanna Áfram Ísland, grasrótarsamtaka sem var hleypt af stokkunum fyrir nokkrum dögum þegar við opnuðum fyrir skráningar. Og gaman að segja frá því að hátt á þriðja þúsund manns hafa skráð sig til leiks og vilja taka þátt í baráttunni á næstu vikum,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, hagfræðingur og einn stofnenda Áfram Ísland.Halldór Benjamín segir forsvarsmenn telja að Íslendingar séu fullfærir um að sækja fram í hvívetna, um leið og þeir
„Óskynsamlegt að taka einhverja u-beygju núna“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd