Það er dýrmætt að fá ólíkar raddir að borðinu og tengja saman ólíka menningarheima, segir verkefnastjóri nýs samfélagsverkefnis á Ásbrú. Hugmyndin kemur frá börnum í Háaleitisskóla sem kölluðu eftir miðlægu hjarta í hverfið.„Svona verður ekki til nema samfélagið taki sig saman og þetta er fyrst og fremst barnanna, þetta er þeirra hugmynd, þau koma hérna að borðinu í einu og öllu. Koma með sínar hugmyndir um það hvað þau vilja gera hérna. Þannig að þetta er búið að vera mjög skemmtilegt verkefni,“ segir Thelma Hrund Hermannsdóttir, verkefnastjóri Hjarta Ásbrúar. 70% NEMENDA MEÐ ANNAÐ MÓÐURMÁL EN ÍSLENSKU Hjarta Ásbrúar er nýtt samfélagsverkefni í gamla leik- og bíóhúsinu Andrews Theater. Hugmyndin kemur frá 400 börnum í Háaleitisskóla sem unnu að framtíðarsýn fyrir hverfið og kölluðu þau