100 ára afmælinu var fagnað í félagsheimilinu Hvolnum á Hvolsvelli þar sem kvenfélagskonur fögnuðu tímamótunum. Í anddyrinu var sögusýning úr starfsemi Einingar sem fólk hafði gaman af að skoða.Kvenfélagið var stofnað í Hvolhreppi en nú heitir sveitarfélagið Rangárþing eystra. Nokkur ávörp voru haldin í afmælinu og að sjálfsögðu svignaði veisluborðið af veitingum frá kvenfélagskonunum.Kvenfélagið Eining í Hvolhreppnum hinum forna fagnaði aldarafmæli um helgina en 34 konur eru í félaginu. Alls eru kvenfélagskonur landsins tæplega fjögur þúsund.„Félagið hefur náttúrulega verið mjög kraftmikið í gegnum árin og styrkt innviðina hér sérstaklega. Það er náttúrulega eins og önnur kvenfélög landsins en við höfum til dæmis styrkt skólann, heilsugæslustöðina og björgunarsveitina og allt þetta,” segi