Norðmenn í sæluvímu eftir að hafa slegið sjálfa Brasilíu út

Norðmenn eru í sæluvímu eftir að hafa slegið sjálfa Brasilíu út á HM í fótbolta. Sumir stuðningsmenn hreinlega grétu af gleði.Brasilía, stórveldið í fótbolta sem hefur unnið HM oftast allra landa, reyndist ekki of stór biti fyrir Norðmenn. Næsti róður Norðmanna er á laugardag, átta liða úrslit á móti Englandi.„Maður vonar bara það besta og maður hefur nú upplifað sjálfur sem Íslendingur að Íslendingar hafa unnið England þannig að ég vona að ég fái að upplifa það hér í Noregi líka,“ segir Heba Líf Jónsdóttir sem hefur búið í Noregi í sex ár.
Norðmenn í sæluvímu eftir að hafa slegið sjálfa Brasilíu út

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd