Ökumanni bjargað af hlið steypubíls í Þjórsá

Steypubíll fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangastöð nú á áttunda tímanum í kvöld, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Suðurlandi. Ökumaðurinn var einn í bílnum. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og var fyrst á staðinn. Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar var ökumanni steypubílsins bjargað upp í þyrluna af hlið bílsins og er nú á leið til Reykjavíkur til aðhlynningar. Ökumaðurinn var orðinn kaldur en ekki er vitað um ástand hans að öðru leyti. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um björgun ökumannsins.
Ökumanni bjargað af hlið steypubíls í Þjórsá

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd