Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. telur forstjóra Matvælastofnunar hafa látið aktívistum gögn í té, þar sem staðsetningarhnit báta Hvals hafi verið sýnileg, til þess að koma höggi á fyrirtækið og starfsfólk þess.Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri MAST brást við gagnrýni Kristjáns á föstudaginn og sagði MAST skylt að afhenda eftirlitsskýrslur sínar á grundvelli upplýsingalaga. Stofnunin hafi þó brugðist við strax og breytt verklagi. Staðsetning langreyðanna sé því ekki lengur skráð í þeirra eftirliti. „ÞEIR HÆTTA ÞESSU“ Rætt var við Kristján í kvöldfréttum Sýnar. Spurður um atvik þar sem sjómaður lék sér að getnaðarlim hvalhræs sagði Kristján það eflaust hafa verið óþarfa. Starfsmenn Hvals hafi þó ekki endilega vitað að fréttamenn Sýnar hafi verið á vettvangi og athæfið líklegast be