Steypubíll fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangastöð nú á áttunda tímanum í kvöld, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Suðurlandi. Viðbragðsaðilar eru á leið á staðinn. Samkvæmt lögreglunni var ökumaðurinn einn í bílnum. Ekki er vitað um ástand hans en þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út.Fréttin verður uppfærð.