Forstjóri Hvals hf. sakar forstjóra MAST um að hafa reynt að koma höggi á fyrirtækið og starfsmenn þess með því að deila staðsetningu hvalveiðiskipa í eftirlitsskýrslum. Hann segist ekki hafa tekið á umdeildu athæfi starfsmanns sem lék sér að limi hvalhræs og bendir hvalaskoðunarfólki á að segja ferðamönnum að horfa í hina áttina þegar þeir nálgast skip við veiðar.