Framkvæmdastjóri NATO segir öll aðildarríki þurfa að leggja sitt af mörkum til þess að stuðningur við Úkraínu haldi áfram. Tveggja daga leiðtogafundur NATO hefst í Tyrklandi á morgun. Hátt í hundrað særðust og á þriðja tug voru drepin í árásum Rússlandshers á Úkraínu í nótt.Nóttin var ógnvekjandi í höfuðborginni Kyiv og nágrenni. Minnst 15 manns voru drepin í Kyiv og fimm í bænum Vyshneve - rétt utan við höfuðborgina.Hátt í hundrað manns særðust í árásum næturinnar. Fjöldi dróna hafnaði á fjölbýlishúsum og Volodymyr Zelenský, forseti Úkraínu, hefur hvatt bandamenn til að efla stuðning við loftvarnakerfi landsins.Úkraínski flugherinn segir loftvarnaflaugar skorta og ekki hafi tekist að skjóta niður neinar eldflaugar í stórfelldri árás næturinnar.Öll aðildarríki NATO þurfa að leggja sitt af