Eldur kviknaði á bæ í Norðfjarðarsveit

Eldur kviknaði á bæ að Skálateigi í Norðfjarðarsveit í dag. Þetta staðfestir fulltrúi slökkviliðsins í Fjarðabyggð. Hann segir slökkvilið enn á vettvangi en að búið sé að slökkva eldinn. Ekki sé frekari upplýsingar að veita að svo stöddu.Að sögn sjónarvotts virðist hafa kviknað í skúr og nokkrir menn hafi staðið fyrir utan. Á myndum má sjá mikinn og svartan reyk leggja frá eldinum.
Eldur kviknaði á bæ í Norðfjarðarsveit

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd