Norska konungfjölskyldan birti í morgun mynd af Mette-Marit krónprinsessu frá því í gær. Það er fyrsta myndin sem birt er af henni frá því að hún gekkst undir lungnaígræðslu í júní.Á myndinni situr hún í sófa með norskan trefil og brosir breitt eftir að Noregur vann 2-1 gegn Brasilíu á HM í knattspyrnu í gær.Krónprinsessan greindist með illvígan lungnasjúkdóm árið 2018. Heilsu krónprinsessunnar hafði hrakað verulega síðustu mánuði og var tilkynnt snemma í júní að hún hefði verið sett á biðlista eftir lungum. Aðgerðin heppnaðist vel samkvæmt tilkynningu frá sjúkrahúsinu í Osló í síðasta mánuði.Krónprinsessan er í hléi frá opinberum skyldum á meðan hún jafnar sig eftir aðgerðina. > View this post on Instagram > > > > A post shared by Det Norske Kongehuset (@detnorskekongehus)