Frakklandsþing felldi í dag vantrauststillögu gegn forsætisráðherra landsins. Stjórnarandstaðan sakaði ríkisstjórnina um að bera ábyrgð á þúsundum dauðsfalla þar í landi vegna hitabylgja síðustu mánaða.Tillagan var lögð fram af stjórnarandstöðuflokki Græningja. Hún sneri að viðbrögðum ríkisstjórnar Sebastien Lecornu forsætisráðherra Frakklands við hitabylgjum í maí og júní. Hitinn fór víða yfir 40 gráður og er talinn hafa valdið rúmlega tvö þúsund dauðsföllum.Við flutning tillögunnar sökuðu Græningjar ríkisstjórnina um að hafa ekki gripið til nógu umfangsmikilla aðgerða til að bregðast við hækkandi hitastigi af völdum loftslagsbreytinga. Þeir sögðu jafnframt að stjórnvöld bæru ekki síður ábyrgð á dauðsföllunum en hitinn sjálfur. SAKAÐI GRÆNINGJA UM AÐ NÝTA SÉR FÓRNARLÖMB HITABYLGJUNNAR